Publicidade

Romanos 11

Guð hefur ekki algjörlega hafnað Gyðingum

1 Þá vil ég spyrja: Hefur Guð hafnað þjóð sinni Gyðingunum og yfirgefið þá? Nei, alls ekki. Minnist þess ég er sjálfur Gyðingur. Ég er afkomandi Abrahams og af ættkvísl Benjamíns. 2,3 Nei, Guð hefur ekki yfirgefið þjóð sína, sem hann tók sér í upphafi. Munið þið hvað Gamla testamentið segir um þetta? Spámaðurinn Elía kvartaði við Guð vegna Gyðinganna og sagði þeir hefðu drepið spámennina og rifið niður ölturu Guðs. Elía hélt því fram hann væri eini maðurinn í öllu landinu sem enn elskaði Guð, og væri sóst eftir lífi hans. 4 Munið þið hverju Guð svaraði? Hann sagði: Nei, þú ert ekki eini sem eftir er. Ennþá eru sjö þúsund aðrir, sem elska mig og hafa ekki tilbeðið hjáguðina!"

5 Eins er þetta enn í dag. Ekki hafa allir Gyðingar snúið baki við Guði. Fáeinir hafa frelsast vegna þess Guð var þeim náðugur og tók þá sér, 6 og fyrst það er gæsku Guðs þakka, þá er það ekki vegna þeirra eigin góðverka. Ef svo væri, þá væri lífið með Guði þessi óverðskuldaða gjöf ekki lengur óverðskulduð, því þá gætu menn unnið sér fyrir henni með góðverkum.

7 Sannleikurinn er þessi: Gyðingarnir sóttust eftir velþóknun Guðs, en aðeins fáeinir þeirra öðluðust hana þeir sem Guð valdi en augu hinna hafa blindast. 8 Það er þetta sem Gamla testamentið á við þegar það segir Guð hafi lokað augum þeirra og eyrum, svo þeir gætu ekki skilið okkur þegar við segjum þeim frá Kristi. Og þannig er þetta enn í dag.

9 Einmitt þetta átti Davíð konungur við þegar hann sagði:

Leyfum þeim halda allsnægtir og önnur gæði séu staðfesting þess Guð hafi velþóknun á þeim. Öll þessi gæði snúist gegn þeim og verði þeim til falls. 10 Augu þeirra lokist og bogni þeir undan sinni eigin byrði."

Ekki endanleg höfnun

11 Þýðir þetta Guð hafi hafnað Gyðingaþjóðinni fyrir fullt og allt? Nei, vissulega ekki! Ætlun hans var gefa heiðingjunum hjálpræði sitt, til þess Gyðingarnir yrðu afbrýðisamir og tækju sækjast eftir hjálpræði Guðs fyrir sjálfa sig. 12 Fyrst allur heimurinn hefur notið góðs af því Gyðingarnir hrösuðu um hjálpræði Guðs og höfnuðu því, þá mun mikil blessun síðar falla heiminum í skaut, þegar Gyðingarnir snúa sér einnig til Krists! 13 Eins og þið vitið, hefur Guð sent mig sem sérstakan erindreka sinn til ykkar heiðingjanna. Á þetta vil ég leggja áherslu og jafnframt minna Gyðinga á það eins oft og ég get, 14 til þess ég, ef mögulegt er, geti fengið þá til sækjast eftir því sem þið heiðingjarnir hafið eignast, svo einhverjir þeirra mættu frelsast. 15 Þegar Gyðingarnir höfnuðu hjálpræðinu sem Guð bauð þeim, sneri hann sér öðrum þjóðum heimsins og bauð þeim hjálpræði sitt. Þess vegna er það mikið gleðiefni er Gyðingar verða kristnir, það er líkast því dauður maður lifni við.

16 Abraham og spámennirnir tilheyra þjóð Guðs og það gera afkomendur þeirra einnig séu rætur trésins heilar, verða greinarnar það líka.

17 Sumar greinarnar á tré Abrahams (sumir Gyðinganna) voru sniðnar af og síðan voruð þið, heiðingjarnir, sem voruð greinar af villtu olíutré, græddir á tré Abrahams. Þið hafið þar með hlotið blessunina sem Guð lofaði Abraham og afkomendum hans, og takið til ykkar, ásamt okkur, þá ríkulegu næringu sem útvalda olíutréð gefur.

18 En gætið þess stæra ykkur ekki af því hafa verið græddir á tré, í stað greinanna sem skornar voru af. Minnist þess eina ástæðan fyrir upphefð ykkar er hafið þið verið græddir á tré Guðs. Munið þið eruð aðeins greinar en ekki rótin.

19 , en," segir þú kannski, þessar greinar voru skornar af til rýma fyrir mér og ég hlýt því hafa eitthvað til míns ágætis."

20 Gætið ykkar! Munið þessar greinar, Gyðingarnir, voru fjarlægðar vegna þess þær trúðu ekki Guði, en þið trúið honum og þess vegna eruð þið þarna. Verið ekki stolt, verið heldur auðmjúk, þakklát og gætin, 21 því fyrst Guð hlífði ekki upphaflegu greinunum, þá kann svo fara hann hlífi ykkur ekki heldur. 22 Munið Guð er bæði vægur og strangur. Hann er strangur við þá sem óhlýðnast og sníður þá af, en ef þið haldið áfram elska hann, þá mun hann miskunna ykkur. 23 Ef Gyðingar snúa sér frá vantrúnni og koma til Guðs, þá mun hann græða þá við stofninn á , því til þess hefur hann mátt.

24 Fyrst Guð er fús taka ykkur sér, ykkur sem voruð fjarri honum voruð greinar á villtu olíutré og græða ykkur á sitt eigið gæðatré en slíkt er mjög óvenjulegt þá hljótið þið skilja löngun hans til setja Gyðingana aftur þar sem þeir voru í upphafi. 25 Kæru vinir, ég vil þetta ykkur ljóst svo stoltið nái ekki tökum á ykkur. Satt er það sumir Gyðinganna hafa risið gegn gleðiboðskap Krists, en það mun breytast þegar allir heiðingjarnir hafa tekið á móti Kristi. 26 Þá mun allur Ísrael frelsast. Munið þið hvað spámennirnir sögðu um þetta?

Frelsari mun koma fram í Síon og hann mun snúa Gyðingunum frá öllum óguðleika. 27 Þá mun ég nema burt syndir þeirra, eins og ég hafði lofað."

28 Margir Gyðingar eru andsnúnir gleðiboðskapnum þeir hata hann. En hatur þeirra hefur orðið ykkur til gagns, því þess vegna hefur Guð gefið ykkur heiðingjunum gjafir sínar. En þrátt fyrir þetta elskar Guð Gyðingana, vegna loforðanna sem hann gaf Abraham, Ísak og Jakob. 29 Guð mun aldrei sjá eftir gjöfum sínum, iðrast köllunar sinnar, því hann gengur aldrei á bak orða sinna. 30 Áður fyrr voruð þið andsnúnir Guði, en þegar Gyðingarnir höfnuðu gjöfum hans, sneri hann sér ykkur með miskunn sína. 31 eru Gyðingarnir í uppreisn gegn Guði, en seinna munu þeir njóta með ykkur þeirrar miskunnar hans sem þið hafið öðlast. 32 Guð hefur gefið þá alla syndinni á vald til hann geti miskunnað þeim öllum. 33 Við eigum undursamlegan Guð! Mikil er viska hans, þekking og auðlegð! Hvernig eigum við skilja ákvarðanir hans og aðferðir? 34 Hvert okkar þekkir hugsanir Drottins? Hver getur ráðlagt Guði eða leiðbeint honum? 35 Hver hefur fyrra bragði gefið honum svo mikið hann geti krafist einhvers í staðinn? 36 Allt er komið frá Guði. Allt er orðið til fyrir mátt hans og allt skal verða honum til vegsemdar. Honum dýrð um alla eilífð!

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-