Pular para o conteúdo
Publicidade

Rómverjabréfið 12:1-3

Lifandi fórn til Guðs

1 Kæru vinir, bræður og systur, ég minni ykkur á að fyrst Guð hefur miskunnað ykkur þá skuluð þið gefast Guði heilshugar sem lifandi, heilög og honum þóknanleg fórn. Það er skynsamleg guðsdýrkun.

2 Takið ekki framkomu og lífsvenjur heimsins ykkur til fyrirmyndar. Lifið sem nýir menn! Látið orð Guðs og anda hans móta hugarfar ykkar og alla framkomu ykkar, orð og verk. Ef þið gerið þetta, þá munuð þið fá að reyna og þekkja vilja Guðs sem er hið góða, fagra og fullkomna.

Þjónið Guði með andlegum gjöfum

3 Nú ætla ég, sem er sendiboði Guðs, að gefa ykkur hverju og einu þessa viðvörun: Metið hæfileika sjálfra ykkar af réttsýni, í samræmi við þann trúarstyrk sem Guð hefur gefið ykkur.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.