17 Gjaldið engum illt fyrir illt. Látið alla sjá að þið hafið hreinan skjöld. 18 Forðist allar deilur og lifið í sátt og samlyndi við alla menn, ef mögulegt er.
19 Kæru vinir, hefnið ykkar aldrei, heldur látið Guð um slíkt. Guð hefur sagt að hann muni endurgjalda hverjum um sig eins og hann á skilið. 20 Gefið heldur óvini ykkar mat sé hann svangur og drykk sé hann þyrstur og þá mun hann iðrast þess að hafa gert ykkur illt. 21 Láttu ekki hið vonda yfirbuga þig, heldur sigraðu illt með góðu.