Hlýðið yfirvöldunum
1 Hlýddu yfirvöldunum, því að öll yfirvöld hafa fengið hlutverk sitt frá Guði. 2 Þeir sem neita að hlýða landslögum, neita þar með að hlýða Guði og eiga hegningu yfir höfði sér. 3 Hinir löghlýðnu þurfa ekki að hræðast dómstólana en þeir sem illt aðhafast bera stöðugt ótta til þeirra. Viljir þú losna við óttann, hlýddu þá landslögum og þér mun farnast vel.