Pular para o conteúdo
Publicidade

Rómverjabréfið 13

Hlýðið yfirvöldunum

1 Hlýddu yfirvöldunum, því öll yfirvöld hafa fengið hlutverk sitt frá Guði. 2 Þeir sem neita hlýða landslögum, neita þar með hlýða Guði og eiga hegningu yfir höfði sér. 3 Hinir löghlýðnu þurfa ekki hræðast dómstólana en þeir sem illt aðhafast bera stöðugt ótta til þeirra. Viljir þú losna við óttann, hlýddu þá landslögum og þér mun farnast vel. 4 Guð hefur sett dómsvaldið þér til hjálpar, en ef þú gerir það sem rangt er, þá hefur þú sannarlega ástæðu til óttast, því þá vofir refsingin yfir þér. skilur þú hvers vegna Guð stofnaði dómsvaldið. 5 Það eru tvær ástæður fyrir því þú átt hlýða lögunum: í fyrsta lagi til þess komast hjá refsingu og í öðru lagi til gera skyldu þína.

6 Af þessum sömu ástæðum ber þér einnig greiða skatta. Yfirvöldin þarfnast skatta til geta unnið það verk sem Guð fól þeim og þar með þjónað þér. 7 Gjaldið það sem ykkur er skylt: Þeim skatt sem skattur ber, þeim hlýðni sem hlýðni ber og þeim heiður sem heiður ber.

Veja também