9 Elskir þú meðbróður þinn jafn mikið og sjálfan þig, þá forðastu að valda honum tjóni eða svíkja hann, ógna lífi hans eða stela frá honum. Þá munt þú ekki heldur vilja syndga með konunni hans né öfunda hann af eignum hans eða gera neitt annað sem boðorðin tíu segja að sé rangt. Öll boðorðin tíu felast í þessu eina: Elskaðu meðbróður þinn eins og sjálfan þig.