1 Sýndu hverjum kristnum manni, sem til þín leitar, vinarhug og gagnrýndu hann ekki þótt trú hans sé veik og hann hafi aðrar skoðanir en þú um hvað sé rétt eða rangt. 2 Þú ættir til dæmis ekki að deila við hann um hvort leyfilegt sé að borða kjöt, sem notað hefur verið í fórn til skurðgoðanna, eða ekki. Slíkt er þér ef til vill ekkert vandamál, en trú hans er veikari en þín og honum finnst það vera rangt og því neytir hann alls ekki kjöts, sé það fórnarkjöt, heldur grænmetis. 3 Þeir sem ekkert sjá athugavert við það að borða slíkt kjöt, mega ekki líta niður á þá sem láta þess óneytt og sért þú einn þeirra, þá skaltu ekki gagnrýna þá sem hafa aðra skoðun, því að Guð hefur tekið þá að sér sem sín börn. 4 Þeir eru þjónar Guðs en ekki ykkar. Látið Guð um að segja þeim hvort þeir hafi á réttu eða röngu að standa, því hann er fullkomlega fær um að gera það.
Publicidade
Publicidade