12 Sérhvert okkar verður að standa Guði reikningsskil á lífi sínu, 13 hættið því að gagnrýna hvert annað! Reynið heldur að lifa þannig að þið verðið aldrei trúsystkinum ykkar að falli og látið þau því ekki sjá ykkur gera neitt það sem þau álíta vera rangt.
Lögmál kærleikans
14 Ég er þess fullviss, vegna samfélags míns við Drottin Jesú, að ekkert er rangt við það að neyta kjöts sem fórnað hefur verið skurðgoðunum, en ef einhver álítur það rangt, þá ætti hann ekki að neyta þess trúar sinnar vegna.