13 hættið því að gagnrýna hvert annað! Reynið heldur að lifa þannig að þið verðið aldrei trúsystkinum ykkar að falli og látið þau því ekki sjá ykkur gera neitt það sem þau álíta vera rangt.
15 Viljir þú halda áfram að neyta þess matar sem þú veist að veldur trúsystkini þínu hugarangri, þá framgengur þú ekki í kærleika. Láttu ekki neysluvenjur þínar verða þeim til tjóns, sem Kristur dó fyrir. 17 Þegar allt kemur til alls, þá skiptir það okkur kristna menn ekki mestu hvað við borðum eða drekkum, heldur að lifa í kærleika, friði og fögnuði heilags anda.