25-27 Ég fel ykkur Guði, honum sem megnar að styrkja ykkur og staðfesta í trúnni, eins og talað er um í gleðiboðskapnum sem ég flyt. Sá boðskapur er leiðin sem Guð hefur opnað öllum mönnum til hjálpræðis og sem öldum saman hefur legið í þagnargildi. En nú hefur það gerst samkvæmt skipun Guðs, eins og spámennirnir sögðu fyrir, að þessi boðskapur er fluttur meðal allra þjóða, svo að fólk um víða veröld trúi Kristi og hlýði honum. Guði, sem þekkir alla hluti, sé dýrð að eilífu fyrir Drottin Jesú Krist. Amen.
Publicidade
Publicidade