Publicidade

Romanos 16

Mælt með Föbe

1 Innan skamms kemur kristin kona, nafni Föbe, í heimsókn til ykkar. Hún hefur lagt mikið á sig fyrir söfnuðinn í Kenkreu og bið ég ykkur taka vel á móti henni, eins og hæfir systur í Drottni. 2 Veitið henni alla þá aðstoð sem ykkur er unnt, því mörgum hefur hún hjálpað og þar á meðal mér. 3 Berið Prisku og Akvílasi kveðju mína. Þau hafa starfað með mér við verk Jesú Krists. 4 Þau hættu lífi sínu mín vegna og ég er ekki eini sem stend í þakkarskuld við þau, það gera allir söfnuðirnir meðal heiðingjanna.

Kveðjur til trúaðra í Róm

5 Gjörið svo vel flytja einnig kveðjur mínar þeim sem koma saman til guðsþjónustu á heimili þeirra. Ég bið heilsa Epænetusi vini mínum. Hann var fyrsti sem tók kristna trú í Asíu. 6 Skilið kveðju til Maríu, hún lagði á sig mikið erfiði til geta hjálpað okkur. 7 Skilið einnig kveðju til Andróníkusar og Júníasar, ættingja minna sem voru með mér í fangelsi. Þeir urðu kristnir á undan mér og postularnir virða þá mikils ég bið kærlega heilsa þeim. 8 Skilið kveðju til Amplíatusar, en hann elska ég sem barn Guðs, 9 og einnig til Urbanusar, samstarfsmanns okkar, og Stakkýss okkar elskaða vinar. 10 Apellesi, honum sendi ég kveðju mína en hann er góður maður og reyndur í Guði. Ég bið einnig kærlega heilsa heimamönnum Aristóbúls. 11 Skilið kveðju til Heródíons ættingja míns. Berið heimilisfólkinu hjá Narkissusi kveðju mína. 12 Skilið kveðju til Trýfænu og Trýfósu, samverkamanna Drottins, og kæru Persis, sem lagt hefur mikið á sig fyrir Drottin. 13 Ég bið heilsa Rúfusi, sem Drottinn tók sér, og móður hans, en hún var mér sem móðir. 14 Ég bið einnig heilsa Asýnkritusi, Flegon, Hermes, Patróbasi, Hermasi og bræðrunum sem með þeim eru.

15 Skilið kærum kveðjum til Fílólógusar, Júlíu, Nerevs og systur hans, einnig til Ólympasar og allra hinna kristnu sem með þeim eru. 16 Heilsið hvert öðru innilega. Allir söfnuðirnir hér um slóðir senda ykkur kveðju sína.

Forðist þá sem valda sundrungu

17 Eitt á ég eftir segja ykkur áður en ég lýk þessu bréfi og það er: Forðist þá sem valda klofningi og sundurþykkju, þá sem fara með rangar kenningar um Krist. 18 Slíkir kennarar starfa ekki fyrir Drottin Jesú, heldur skara þeir eld eigin köku. Þessir menn eru mælskir og oft láta einfeldningar glepjast af því sem þeir segja. 19 En altalað er þið séuð áreiðanleg og hlýðin og slíkt gleður mig mjög. Ég vil þið haldið ykkur áfram því sem rétt er og takið engan þátt í hinu illa. 20 Guð friðarins mun brátt merja Satan undir fótum ykkar! Blessun Drottins Jesú Krists yfir ykkur.

Kveðja frá vinum Páls

21 Tímóteus, samstarfsmaður minn, Lúkíus, Jason og Sósípater, ættmenn mínir biðja kærlega heilsa ykkur.

22 Ég, Tertíus, sem hef skrifað þetta bréf fyrir Pál, sendi ykkur einnig vinarkveðju. 23 Gajus bað mig skila kveðju til ykkar frá sér. Ég gisti hjá honum og söfnuðurinn kemur saman hér á heimili hans. Erastus, gjaldkeri borgarinnar, biður heilsa, svo og Kvartus, en hann er bróðir í Kristi.

24 Verið þið sæl. Náð Drottins Jesú Krists með ykkur öllum.

Blessunaróskir

25-27 Ég fel ykkur Guði, honum sem megnar styrkja ykkur og staðfesta í trúnni, eins og talað er um í gleðiboðskapnum sem ég flyt. boðskapur er leiðin sem Guð hefur opnað öllum mönnum til hjálpræðis og sem öldum saman hefur legið í þagnargildi. En hefur það gerst samkvæmt skipun Guðs, eins og spámennirnir sögðu fyrir, þessi boðskapur er fluttur meðal allra þjóða, svo fólk um víða veröld trúi Kristi og hlýði honum. Guði, sem þekkir alla hluti, dýrð eilífu fyrir Drottin Jesú Krist. Amen.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-