17 Þetta á Gamla testamentið við þegar það segir að Guð hafi gert Abraham að föður margra þjóða. Guð vill taka á móti öllum sem treysta honum eins og Abraham gerði, hverrar þjóðar sem þeir eru. Loforðið sem hann fékk var frá sjálfum Guði, honum sem reisir hina dauðu og segir fyrir um atburði framtíðarinnar af nákvæmni eins og um liðinn tíma sé að ræða.
18 Þegar Guð sagði Abraham að hann mundi gefa honum son sem eignast mundi marga afkomendur og verða faðir mikillar þjóðar, þá trúði Abraham Guði, jafnvel þótt slíkt loforð virtist algjör fásinna. 19 Abraham var ekki áhyggjufullur þótt bæði hann, sem var á hundraðasta aldursári og Sara sem var níræð, væru komin úr barneign, því að hann treysti orðum Guðs óhikað.
20 Abraham efaðist aldrei. Hann trúði Guði. Trú hans styrktist og hann þakkaði Guði fyrir þetta loforð löngu áður en það rættist. 21 Hann var sannfærður um að Guði reyndist auðvelt að efna allt sem hann hefði lofað.