Publicidade

Romanos 4

Abraham réttlættist fyrir trú

1 Abraham var forfaðir Gyðingaþjóðarinnar. Hvernig kemur þetta frelsast fyrir trú, heim og saman við það sem við vitum um hann? 2 Leit Guð á hann sem saklausan og réttlátan mann vegna góðverka hans? Ef svo hefði verið þá hefði Abraham haft ástæðu til hrósa sér. En frammi fyrir Guði hafði hann alls ekkert til hrósa sér af, 3 en hins vegar segir í Gamla testamentinu: Abraham trúði Guði," og það er ástæða þess Guð strikaði yfir syndir hans og úrskurðaði hann réttlátan.

4,5 En ávann Abraham sér ekki rétt til komast til himna með öllum sínum góðu verkum? Nei, því hjálpræðið er alltaf óverðskulduð gjöf. Ef einhver gæti unnið sér inn fyrir því með góðverkum, þá væri það ekki lengur ókeypis! Það er gefið þeim sem ekki hafa unnið fyrir því. Guð segir beinlínis: Syndarinn er sýknaður í mínum augum, ef hann treystir því Kristur frelsi hann frá dómi mínum yfir syndinni."

Davíð þekkti sömu sannindi

6 Davíð konungur ræddi um þetta og lýsti gæfu hins óverðuga syndara sem Guð hefur úrskurðað saklausan. 7 Hann sagði: Sæll er sem fær syndir sínar fyrirgefnar og afmáðar. 8 Mikil er gæfa þess manns sem Guð sýknar."

Abraham réttlættist áður en hann lét umskerast

9 spyr ég: Er þessi blessun einungis handa þeim sem trúa á Krist og halda samtímis lög Gyðinga, eða er hún einnig ætluð þeim sem ekki halda lög Gyðinga, en treysta einungis á Krist? Hvernig var það með Abraham? Við tölum um hann hafi hlotið þessa blessun vegna trúar sinnar, en var það vegna hennar einnar? Var það kannski líka vegna þess hann fór eftir gyðinglegum siðum?

10 Til þess svar við þessari spurningu verðum við fyrst svara annarri: Hvenær veitti Guð Abraham blessunina? Það var áður en hann varð Gyðingur, það er segja áður en hann tók hina gyðinglegu vígslu sem kallast umskurn.

11 Það var ekki fyrr en eftir Guð hafði lofað blessa hann, vegna trúar hans, hann var umskorinn. Umskurnin var tákn þess Abraham átti þá þegar trú og Guð hafði tekið hann sér og lýst því yfir í sínum augum væri hann góður og réttlátur. Samkvæmt þessu er Abraham hinn andlegi faðir þeirra sem trúa og frelsast án þess halda sig við lögin. Af þessu sjáum við Guð réttlætir þá sem trúa, enda þótt þeir haldi ekki þessar reglur. 12 Abraham er einnig andlegur faðir hinna umskornu Gyðinganna og með því athuga líf hans geta þeir séð það er ekki þessi siðvenja umskurnin sem frelsar þá, heldur trúin. Eingöngu hennar vegna hlaut Abraham miskunn Guðs áður en hann var umskorinn.

Fyrirheitið gefið fyrir trú

13 Ljóst er því loforð Guðs um hann ætlaði gefa Abraham og afkomendum hans alla jörðina, var ekki gefið vegna þess Abraham hlýddi lögum Guðs, heldur hins, hann treysti Guði og því hann stæði við heit sín. 14 Ef þið haldið því ennþá fram blessun Guðs ætluð þeim einum sem halda lögin, þá segið þið þar með loforð Guðs til þeirra sem trúa séu marklaus og trúin heimska. 15 Sannleikurinn er hins vegar ef við ætlum blessun Guðs og hjálpræði með því halda lög hans, þá köllum við lokum reiði hans yfir okkur, því okkur mun aldrei takast halda þau. Eina leiðin til komast hjá því brjóta lög er hafa engin lög!

16 Blessun Guðs veitist okkur ókeypis fyrir trúna, sem gjöf. Við erum þess fullviss okkur veitist hún, ef við trúum eins og Abraham, hvort sem við erum Gyðingar eða ekki, því Abraham er faðir okkar allra því er trúna varðar. 17 Þetta á Gamla testamentið við þegar það segir Guð hafi gert Abraham föður margra þjóða. Guð vill taka á móti öllum sem treysta honum eins og Abraham gerði, hverrar þjóðar sem þeir eru. Loforðið sem hann fékk var frá sjálfum Guði, honum sem reisir hina dauðu og segir fyrir um atburði framtíðarinnar af nákvæmni eins og um liðinn tíma ræða.

18 Þegar Guð sagði Abraham hann mundi gefa honum son sem eignast mundi marga afkomendur og verða faðir mikillar þjóðar, þá trúði Abraham Guði, jafnvel þótt slíkt loforð virtist algjör fásinna. 19 Abraham var ekki áhyggjufullur þótt bæði hann, sem var á hundraðasta aldursári og Sara sem var níræð, væru komin úr barneign, því hann treysti orðum Guðs óhikað.

20 Abraham efaðist aldrei. Hann trúði Guði. Trú hans styrktist og hann þakkaði Guði fyrir þetta loforð löngu áður en það rættist. 21 Hann var sannfærður um Guði reyndist auðvelt efna allt sem hann hefði lofað. 22 Vegna trúar Abrahams fyrirgaf Guð honum syndir hans og sýknaði hann.

23 Þessi mikilvæga yfirlýsing hann væri tekinn gildur vegna trúar sinnar og þar með viðurkenndur réttlátur var ekki aðeins Abraham til góðs, 24 heldur okkur líka. Þetta er okkur trygging þess Guð vilji taka okkur sér á sama hátt og Abraham, það er segja þegar við trúum loforðum Guðs, hans sem reisti Jesú upp frá dauðum. 25 Jesús fyrir syndir okkar og reis síðan upp til sætta okkur við Guð og gefa okkur réttlæti hans.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-