Trúin eflir þolinmæði
1 Fyrst við erum sýknuð og réttlát í augum Guðs vegna trúarinnar á fyrirheit hans, þá getum við lifað í friði og sátt við hann vegna þess sem Jesús Kristur, Drottinn okkar, gerði fyrir okkur. 2 Vegna trúar okkar hefur hann veitt okkur hin æðstu forréttindi og þannig er aðstaða okkar nú. Við horfum með djörfung og gleði fram til alls þess sem Guð ætlar okkur að verða. 3 Þegar við lendum í erfiðleikum og raunum þá getum við líka glaðst, því að við vitum að slíkt verður okkur til góðs. Það eflir þolgæði okkar, 4 styrkir persónuleikann og það auðveldar okkur að treysta Guði æ betur, eða þangað til trú okkar verður að lokum sterk og óhagganleg. 5 Þegar þessu marki er náð, getum við verið hughraust, hvað sem á dynur því að þá vitum við að allt muni fara vel. Við vitum að Guð elskar okkur og hann hefur gefið okkur heilagan anda og fyllt hjörtu okkar af kærleika sínum. Við finnum að við erum umvafin kærleika hans!