Dáin í syndinni, lifandi í Guði
1 Hvað er um þetta að segja? Eigum við að halda áfram að syndga svo að Guð geti sýnt okkur kærleika sinn og fyrirgefningu enn betur?
2,3 Nei, alls ekki! Hvaða vit er í því að syndga ef hægt er að komast hjá því? Valdið sem syndin hafði yfir okkur, var brotið á bak aftur þegar við urðum kristin og vorum skírð til að verða samgróin Kristi. Dauði Krists braut á bak aftur það afl sem syndin hafði í lífi okkar.