12 Leyfið syndinni ekki framar að stjórna dauðlegum líkömum ykkar og látið ekki undan girnd þeirra. 13 Látið engan hluta líkamans verða verkfæri í höndum hins illa, til að drýgja synd, en gefið ykkur algjörlega Guði á vald – hvern einasta líkamshluta – því þið hafið snúið baki við dauðanum. Nú þráið þið að verða verkfæri í höndum Guðs, svo að hann geti notað ykkur til að framkvæma góðar fyrirætlanir sínar. 14 Syndin þarf ekki lengur að vera húsbóndi ykkar, því að nú eruð þið laus við lögin sem syndin þrælkaði ykkur með. Nú eruð þið frjáls vegna kærleika og miskunnar Guðs.
Þrælar syndar verða þjónar Guðs
15 Þýðir þetta að við getum haldið áfram að syndga og kært okkur kollótt um afleiðingarnar? Vegna þess að hjálpræði okkar byggist ekki á því að hlýða lögunum heldur á því að taka á móti náð Guðs!
Nei, auðvitað ekki!
16 Skiljið þið ekki að það er á ykkar valdi að velja ykkur húsbónda? Annars vegar getið þið valið syndina, og þar með dauðann, eða þá hlýðni og hlotið sýknun. Sá sem þið gefið ykkur á vald, hann mun taka við ykkur og verða húsbóndi ykkar og þið þrælar hans. 17 Þakkið Guði, því að þótt þið væruð einu sinni þrælar syndarinnar, þá hafið þið nú hlýðnast þeim boðskap sem Guð flutti ykkur. 18 Nú eruð þið laus úr ánauð gamla húsbóndans, syndarinnar, og eruð þess í stað orðin þjónar nýs húsbónda: Réttlætisins!