16 Skiljið þið ekki að það er á ykkar valdi að velja ykkur húsbónda? Annars vegar getið þið valið syndina, og þar með dauðann, eða þá hlýðni og hlotið sýknun. Sá sem þið gefið ykkur á vald, hann mun taka við ykkur og verða húsbóndi ykkar og þið þrælar hans. 17 Þakkið Guði, því að þótt þið væruð einu sinni þrælar syndarinnar, þá hafið þið nú hlýðnast þeim boðskap sem Guð flutti ykkur. 18 Nú eruð þið laus úr ánauð gamla húsbóndans, syndarinnar, og eruð þess í stað orðin þjónar nýs húsbónda: Réttlætisins!
20 Þegar þið voruð þrælar syndarinnar þá skeyttuð þið lítið um hið góða. 21 Hver var afleiðingin? Hún hefur áreiðanlega ekki verið af betra taginu, fyrst þið skammist ykkar jafnvel fyrir að hugsa um það sem þið voruð áður vön að gera, en allt leiddi það til eilífs dóms. 22 Nú eruð þið hins vegar laus undan valdi syndarinnar og hafið gerst þjónar Guðs. Hlunnindin, sem Guð veitir ykkur, eru meðal annars helgun og eilíft líf. 23 Laun syndarinnar eru dauði, en óverðskulduð gjöf Guðs til okkar er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.