2,3 Nei, alls ekki! Hvaða vit er í því að syndga ef hægt er að komast hjá því? Valdið sem syndin hafði yfir okkur, var brotið á bak aftur þegar við urðum kristin og vorum skírð til að verða samgróin Kristi. Dauði Krists braut á bak aftur það afl sem syndin hafði í lífi okkar. 4 Okkar gamla eðli, sem elskaði syndina, var grafið með honum í skírninni þegar hann dó. Og þegar Guð faðir reisti hann aftur til lífsins með dýrlegum krafti, þá eignuðumst við hlutdeild í lífi hans.
5 Við erum orðin samgróin honum og þegar hann dó, þá dóum við með honum. Nú eigum við sameiginlega hlutdeild í nýja lífinu hans og munum rísa upp á sama hátt og hann.
6 Þegar Kristur var krossfestur, voru gömlu og illu hvatirnar okkar krossfestar með honum. Þessar hvatir sem þrá syndina, voru særðar til ólífis. Líkami okkar er því ekki lengur á valdi syndarinnar og þarf ekki að vera þræll hennar. 7 Þegar við dóum syndinni, vorum við leyst undan öllu því táli og valdi sem hún beitti okkur.