14 Lögin eru góð og vandinn liggur ekki þar, heldur hjá mér, því að ég er seldur í þrældóm fyrir synd.
Lögmálið getur ekki frelsað frá synd
15 Ég get alls ekki skilið sjálfan mig. Mig langar til að gera það sem er rétt, en ég get það ekki. Ég geri það sem mér er ógeðfellt – það sem ég hata. 16 Mér er fullkomlega ljóst að það sem ég geri er rangt, því að slæm samviska mín segir mér það. Hún bendir mér á að lögin, sem ég brýt, séu réttlát og sönn. 17 Samt get ég ekkert að þessu gert, því að það er ekki lengur ég sem vinn verkið. Syndin, sem í mér er, er sterkari en ég og fær mig til að gera hið illa.