Pular para o conteúdo
Publicidade

Rómverjabréfið 7:15,18,19,24,25

Lögmálið getur ekki frelsað frá synd

15 Ég get alls ekki skilið sjálfan mig. Mig langar til að gera það sem er rétt, en ég get það ekki. Ég geri það sem mér er ógeðfellt – það sem ég hata. 18 Ég veit að mitt gamla eðli er gegnsýrt af syndinni. Mér er auðvelt að vilja hið góða, en ekki að framkvæma það, 19 því að hið góða, sem ég vil, það geri ég ekki, en hið vonda, sem ég ekki vil, það geri ég.

23-25 en það er eitthvað annað djúpt innra með mér – lægri hvatir – sem berst gegn vilja mínum, hefur yfirburði, sem gerir mig að þræli syndarinnar sem í mér er. Ásetningur minn er að vera hlýðinn þjónn Guðs, en þess í stað finn ég að ég er enn í ánauð syndarinnar.

Þið sjáið þetta sjálf: Hið nýja líf mitt segir mér að gera það rétta en gamla eðlið, sem enn er í mér, þráir syndina. Æ, þetta er hræðileg aðstaða! Hver getur frelsað mig frá þrældómi syndarinnar? Þökk sé Guði að Jesús Kristur, Drottinn okkar og frelsari, hefur þegar gert það og þar með leyst mig úr ánauðinni.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.