Publicidade

Romanos 7

Frjáls undan lögunum

1 Kæru Gyðingar, trúsystkini, skiljið þið ekki enn, þegar einhver deyr þá lögin ekki lengur yfir hann?

2 Leyfið mér útskýra þetta með dæmi: Þegar kona hefur gifst er hún bundin eiginmanni sínum lögum samkvæmt, þar til hann deyr. Missi hún mann sinn er hún ekki lengur bundin honum og því laus undan hjúskaparlögunum. 3 Eftir það gæti hún gifst hverjum sem hún vill. Slíkt væri óheimilt ef maður hennar væri á lífi, en honum látnum er það fullkomlega heimilt.

4 Áður fyrr voru lög Gyðinga eiginmaður ykkar og húsbóndi. Síðan dóuð" þið með Kristi á krossinum og fyrst þið eruð dáin" þá eruð þið ekki lengur gift" lögunum. Þau ekki lengur yfir ykkur. Þegar Kristur reis upp, þá risuð þið einnig upp með honum og eruð því nýir menn. Við getum því sagt séuð þið gengin í hjónaband" með honum sem reis upp frá dauðum, til þið getið borið góðan ávöxt, það er segja, gert það sem Guði er þóknanlegt. 5 Meðan þið hlýdduð ykkar gamla synduga eðli, hneigðust þið sífellt til óhlýðnast vilja Guðs og syndga. Þannig gerðuð þið það sem illt var og báruð skemmdan ávöxt ávöxt dauðans. 6 eruð þið hins vegar leyst undan lögum og siðum Gyðinga, því þið dóuð" meðan þið voruð í ánauð hjá þeim. getið þið þjónað Guði ekki með gömlu aðferðinni, hlýða fjölda reglna á vélrænan hátt heldur með þeirri nýju vera leidd af heilögum anda.

Syndin notar lögin

7 En er ég þá segja þessi lög Guðs séu vond? Nei, auðvitað ekki. Lögin eru ekki syndsamleg, en þau sýndu mér synd mína. Ef lögin hefðu ekki sagt: Þú skalt ekki girnast" þá hefði ég aldrei komið auga á syndina í hjarta mínu, þær illu hvatir og girndir sem þar leynast. 8 Syndin tók þessi lög, sem sett voru til ég mætti verjast illum hvötum og notaði þau til vekja hjá mér löngun til þess, sem bannað er. Ef ekki væru til nein lög sem hægt væri brjóta, væri ekki heldur til nein óhlýðni og þar með engin synd.

9 Því var það, á meðan ég skildi ekki hvers lögin kröfðust, fannst mér allt í góðu lagi, en þegar sannleikurinn rann upp fyrir mér, þá ég ég var syndari sem hafði brotið lögin og var því dauðasekur. 10 Lögin voru góð og áttu benda mér á veg lífsins, en þau urðu hins vegar til þess ég hlaut dauðadóm. 11 Syndin blekkti mig með því nota þessi góðu lög Guðs til dæma mig til dauða. 12 Þrátt fyrir þetta voru lögin sjálf góð og réttlát. 13 Hvernig getur það verið? Voru þau ekki orsök þess ég var dæmdur? Hvernig geta þau þá verið góð? Þau eru vissulega góð, en það var hins vegar syndin, það djöfullega fyrirbæri, sem notaði hið góða til dæma mig til dauða. Af þessu ættuð þið skilja hve slæg, banvæn og bölvuð hún er. Hún notar lög Guðs, sem eru góð, til koma fram sínum illu fyrirætlunum. 14 Lögin eru góð og vandinn liggur ekki þar, heldur hjá mér, því ég er seldur í þrældóm fyrir synd.

Lögmálið getur ekki frelsað frá synd

15 Ég get alls ekki skilið sjálfan mig. Mig langar til gera það sem er rétt, en ég get það ekki. Ég geri það sem mér er ógeðfellt það sem ég hata. 16 Mér er fullkomlega ljóst það sem ég geri er rangt, því slæm samviska mín segir mér það. Hún bendir mér á lögin, sem ég brýt, séu réttlát og sönn. 17 Samt get ég ekkert þessu gert, því það er ekki lengur ég sem vinn verkið. Syndin, sem í mér er, er sterkari en ég og fær mig til gera hið illa. 18 Ég veit mitt gamla eðli er gegnsýrt af syndinni. Mér er auðvelt vilja hið góða, en ekki framkvæma það, 19 því hið góða, sem ég vil, það geri ég ekki, en hið vonda, sem ég ekki vil, það geri ég. 20 Fyrst ég geri það sem mér er ógeðfellt, þá er auðséð hvað er: Ég er í klóm syndarinnar.

21 Það virðist regla hjá mér, sem vil gera hið rétta, hið illa er mér tamast. 22 Samkvæmt mínu nýja eðli þrái ég gera vilja Guðs, 23-25 en það er eitthvað annað djúpt innra með mér lægri hvatir sem berst gegn vilja mínum, hefur yfirburði, sem gerir mig þræli syndarinnar sem í mér er. Ásetningur minn er vera hlýðinn þjónn Guðs, en þess í stað finn ég ég er enn í ánauð syndarinnar.

Þið sjáið þetta sjálf: Hið nýja líf mitt segir mér gera það rétta en gamla eðlið, sem enn er í mér, þráir syndina. Æ, þetta er hræðileg aðstaða! Hver getur frelsað mig frá þrældómi syndarinnar? Þökk Guði Jesús Kristur, Drottinn okkar og frelsari, hefur þegar gert það og þar með leyst mig úr ánauðinni.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-29_22-07-56-