Pular para o conteúdo
Publicidade

Rómverjabréfið 8:1-9,13,14

Frjáls frá viðloðandi synd

1 Þeir sem tilheyra Jesú Kristi verða ekki fordæmdir. 2 Kraftur heilags anda, sem fæst af trúnni á Jesú Krist, hefur leyst mig út úr þessum vítahring syndar og dauða. 3 Við frelsumst ekki úr klóm syndarinnar með því að kunna boðorðin, því að við getum ekki haldið þau. Guð opnaði hins vegar aðra leið til að frelsa okkur. Hann sendi okkur einkason sinn sem varð maður eins og við, að öðru leyti en því að við erum syndug. Sonurinn braut á bak aftur það vald sem syndin hafði yfir okkur, með því að deyja fyrir syndir okkar. 4 Þess vegna getum við nú hlýtt lögum Guðs, það er að segja, ef við förum eftir því sem heilagur andi segir, í stað þess að hlýðnast eigingirni okkar.

5 Þeir sem láta eigin vilja ráða, stjórnast af lægstu hvötum sínum og lifa aðeins til að þóknast sjálfum sér, en þeir sem hlýða heilögum anda gera það sem Guði er þóknanlegt. 6 Heilagur andi veitir líf og frið, en ef við hlýðum eigingirninni þá endar slíkt með dauða, 7 því að hún er í andstöðu við Guð. Hún hefur ekki hlýtt lögum Guðs hingað til og mun aldrei gera. 8 Þetta er ástæða þess að þeir sem enn láta eigingirnina, sjálfselskuna og syndina móta líf sitt, geta aldrei þóknast Guði. 9 En þannig er ekki ástatt um ykkur, því að þið hljótið að láta stjórnast af nýja hugarfarinu ykkar, svo framarlega sem heilagur andi býr í ykkur. (Minnist þess að sá sem ekki á anda Krists er alls ekki kristinn.)

13 Ef þið haldið því áfram þá glatist þið, en ef þið deyðið það og allar afleiðingar þess með krafti heilags anda, þá munuð þið lifa, 14 því að allir þeir, sem láta anda Guðs leiða sig, eru Guðs börn.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.