Pular para o conteúdo
Publicidade

Rómverjabréfið 8:11-17

11 Ef nú andi Guðs, sem reisti Jesú upp frá dauðum, býr í ykkur, þá mun Guð síðar reisa líkama ykkar upp frá dauðum með krafti anda síns.

Börn fyrir andann

12 Kæru systkini í Kristi, af þessu sjáið þið að þið hafið alls engar skyldur við gamla synduga eðlið ykkar og þurfið ekki að hlýðnast því. 13 Ef þið haldið því áfram þá glatist þið, en ef þið deyðið það og allar afleiðingar þess með krafti heilags anda, þá munuð þið lifa, 14 því að allir þeir, sem láta anda Guðs leiða sig, eru Guðs börn. 15 Við eigum því ekki að líkjast hræddum og niðurlútum þrælum, heldur eigum við að hegða okkur eins og einkabörn Guðs. Hann hefur tekið okkur inn í fjölskyldu sína og leyft okkur að kalla sig föður, já, pabba! 16 Heilagur andi segir okkur að við séum Guðs börn og það erum við! 17 Og fyrst við erum börnin hans, erum við líka erfingjar hans og fáum að njóta auðæfa hans með honum, því að allt sem Guð gefur syni sínum Jesú, eigum við með honum. En ef við eigum að fá hlutdeild í dýrð hans, þá verðum við einnig að vera reiðubúin að þjást með honum.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.