15 Við eigum því ekki að líkjast hræddum og niðurlútum þrælum, heldur eigum við að hegða okkur eins og einkabörn Guðs. Hann hefur tekið okkur inn í fjölskyldu sína og leyft okkur að kalla sig föður, já, pabba! 16 Heilagur andi segir okkur að við séum Guðs börn og það erum við! 17 Og fyrst við erum börnin hans, erum við líka erfingjar hans og fáum að njóta auðæfa hans með honum, því að allt sem Guð gefur syni sínum Jesú, eigum við með honum. En ef við eigum að fá hlutdeild í dýrð hans, þá verðum við einnig að vera reiðubúin að þjást með honum.