19 Öll sköpunin bíður þess dags, þolinmóð og vongóð, er Guð vekur börnin sín. 20,21 Þá mun synd, dauði og rotnun – allt það sem með leyfi Guðs hefur spillt sköpuninni, gegn hennar eigin ósk – það mun allt hverfa og heimurinn umhverfis okkur mun gleðjast með okkur, börnum Guðs, er við losnum að fullu og öllu úr viðjum syndarinnar. 22 Okkur er ljóst að náttúran – bæði dýrin og jurtirnar – er ofurseld sjúkdómum og dauða meðan hún bíður þessa stórkostlega atburðar. 23 En náttúran er ekki ein um að þjást. Við, sem eigum heilagan anda, forsmekkinn að dýrð framtíðarinnar, þráum einnig að losna frá kvöl og þjáningum. Ó, hve við þráum þann dag er Guð veitir okkur hinn fullkomna barnarétt og um leið nýju líkamana sem hann hefur lofað okkur – líkama sem hvorki veikjast né deyja. 24 Þessi von okkar hefur frelsað okkur. Að trúa er hið sama og að vænta einhvers sem enn er ekki orðið, en sá sem á, þarf ekki að vona og trúa að hann muni fá. 25 Að bíða í von eftir því sem Guð mun gefa, styrkir trú okkar og þolinmæði.
Publicidade