Pular para o conteúdo
Publicidade

Rómverjabréfið 8:31-39

Eilífur kærleikur Guðs

31 Hvað getum við sagt við slíkri gæfu? Fyrst Guð er með okkur, hver megnar þá að standa gegn okkur? 32 Guð hlífði ekki sínum eigin syni, heldur lagði hann í sölurnar fyrir okkur öll, og fyrst svo er, skyldi hann þá ekki gefa okkur allt annað að auki? Jú, svo sannarlega!

33 Hver dirfist að ákæra okkur fyrst Guð hefur valið okkur til að vera börnin sín? Hann fyrirgaf okkur og kom okkur í sátt við sig. 34 Hver mun þá geta fordæmt okkur? Kristur? Nei! Því að hann dó fyrir okkur og situr nú í hásæti dýrðarinnar á himnum, næstur Guði, og biður fyrir okkur.

35 Getur þá nokkuð útilokað okkur frá kærleika Krists? Hvað með erfiðleika og ógæfu ýmiss konar? Eru ekki ofsóknir og niðurlæging, sem við verðum fyrir, sönnun þess að hann hafi ekki lengur velþóknun á okkur? Eða hvað um hungur, fátækt og lífshættu? Gefur slíkt ekki til kynna að Guð hafi yfirgefið okkur? 36 Nei! Gamla testamentið segir að sé það vilji Guðs, verðum við að vera reiðubúin að horfast í augu við dauðann hvenær sem er – já, vera eins og lömb sem bíða slátrunar. 37 En hvað sem þessu líður þá erum við sigursæl í Kristi, honum sem elskaði okkur svo heitt að hann dó fyrir okkur. 38 Ég er sannfærður um að ekkert mun geta gert okkur viðskila við kærleika Krists, hvorki dauði né líf, né nokkur önnur öfl á himni eða jörðu. Atburðir líðandi stundar, áhyggjuefni morgundagsins, 39 hamfarir náttúrunnar – ekkert af þessu mun nokkru sinni megna að gera okkur viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.