36 Nei! Gamla testamentið segir að sé það vilji Guðs, verðum við að vera reiðubúin að horfast í augu við dauðann hvenær sem er – já, vera eins og lömb sem bíða slátrunar. 37 En hvað sem þessu líður þá erum við sigursæl í Kristi, honum sem elskaði okkur svo heitt að hann dó fyrir okkur. 38 Ég er sannfærður um að ekkert mun geta gert okkur viðskila við kærleika Krists, hvorki dauði né líf, né nokkur önnur öfl á himni eða jörðu. Atburðir líðandi stundar, áhyggjuefni morgundagsins, 39 hamfarir náttúrunnar – ekkert af þessu mun nokkru sinni megna að gera okkur viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú, Drottni okkar og frelsara.
Publicidade
Publicidade