19 Kæru vinir, hér er góð regla: Hlustið og takið vel eftir öllu, segið fátt og reiðist ekki.
21 Leggið nú af allt illt, hvort sem það er í orði, verki eða hugsun, en gleðjist heldur yfir þeim mikla boðskap sem við höfum meðtekið, því að nái hann tökum á okkur, getur hann frelsað sálir okkar.
22 Og munið: Ekki nægir aðeins að hlusta á boðskapinn, honum verður einnig að hlýða, athugið það! 23 Sá sem lætur sér nægja að hlusta, en fer ekki eftir því sem hann heyrir, er líkur manni sem horfir á sjálfan sig í spegli, 24 en gleymir svo útliti sínu jafnskjótt og hann er genginn frá speglinum. 25 En sá sem sífellt rannsakar orð Guðs og hjálpræðisverk hans og fer eftir því, mun hljóta blessun við allt sem hann gerir.