5 Ef ykkur langar til að vita hver er vilji Guðs með ykkur, þá spyrjið hann og hann mun fúslega segja ykkur það. Hann er reiðubúinn að miðla vísdómi sínum, þeim sem um það biðja. 6 Þegar þið biðjið, þá verðið þið að vænta bænheyrslu. Ef þið efist, eruð þið eins og sjávaralda, sem rís og hrekst fyrir vindi.
7,8 Þá verða líka allar ákvarðanir ykkar óákveðnar og þið vitið varla í hvorn fótinn þið eigið að stíga. Ef þið biðjið ekki í trú, skuluð þið ekki heldur vænta svars frá Drottni.