9 Kristnu vinir, sé einhver ykkar lítils metinn í þessum heimi, hefur hann ástæðu til að gleðjast, því að hann er mikils virði í augum Drottins. 10,11 Og sá ríki gleðjist af því að Drottinn er ekki háður auðæfum hans. Innan skamms er hann dáinn, eins og blómið, sem skrælnar í sólarbreiskjunni og missir fegurð sína. Þannig fer fyrir hinum ríku, þeir lifa um stund, en deyja svo frá öllu sínu amstri.