Trú og verk
14 Kæru vinir, hvað gagnar það þótt þið segist eiga trú og vera kristnir, ef það sést ekki í hjálpsemi við aðra? Mun slík trú geta frelsað nokkurn? 15 Þú segir við vin þinn, sem skortir bæði fæði og klæði: 16 „Hafðu það gott og borðaðu þig saddan. Vertu sæll og Guð blessi þig!" Hvaða gagn er í slíku, ef þú gefur honum hvorki föt né mat?
17 Þið skiljið af þessu að trúin ein nægir ekki. Þið verðið einnig að gera öðrum gott til þess að sanna að þið eigið trúna. Trú, sem ekki birtist í góðum verkum, er alls engin trú. Slík trú er dauð og gagnslaus.
18 Þú segir kannski: „Já, en trúin er eina leiðin til Guðs." Því svara ég: „Góð verk eru líka mikilvæg, því að án þeirra getur þú ekki sýnt að þú trúir. Verkin sanna trúna."
19 Eru fleiri á meðal ykkar, sem segja að það nægi „bara að trúa"? Trúa hverju? Því að aðeins sé til einn Guð? Því trúa illu andarnir líka og skjálfa við tilhugsunina! 20 Fávísi maður! Hvenær ætlar þú að láta þér skiljast, að trúin er gagnslaus nema þú gerir Guðs vilja? Trú, sem ekki birtist í góðum verkum, er dauð trú.
21 Þið munið að Abraham, faðir okkar, var einmitt úrskurðaður réttlátur vegna þess sem hann gerði, eftir að hann ákvað að hlýða Guði, jafnvel þótt það fæli í sér að hann þyrfti að fórna Ísaki syni sínum. 22 Skiljið þið þetta? Abraham bar slíkt traust til Guðs að hann var fús að hlýða honum í einu og öllu. Trú hans fullkomnaðist í verkum hans. 23 Gamla testamentið orðar þetta svo: Abraham trúði Guði og það réttlætti hann í augum Guðs. Abraham var meira að segja kallaður „vinur Guðs". 24 Af þessu sjáið þið að maðurinn frelsast af verkum, sem hann vinnur í trú.
25 Skækjan Rahab er enn eitt dæmið um þetta. Hún bjargaðist vegna þess sem hún gerði. Hún faldi sendiboðana og kom þeim síðan undan. 26 Eins og líkaminn deyr þegar andinn yfirgefur hann, þannig er trúin líka dauð, ef hún birtist ekki í góðum verkum.