Publicidade

Tiago 3

3 Með beislinu einu getum við látið sterkan hest hlýða okkur og fara hvert sem við viljum. 4 Með litlu stýri getur stýrimaðurinn snúið stóru skipi hvert sem hann vill, jafnvel í stormi.

5 Tungan er einnig lítil, en getur valdið miklu tjóni! Skógareld kveikja með einum litlum neista. 6 Tungan er logandi eldur. Hún er full illsku og eitrar allan líkamann. Tungan er tendruð af sjálfu helvíti og hún getur leitt ógn og eyðingu yfir líf okkar.

7 Menn geta tamið alls konar skepnur og fugla, skriðkvikindi og fiska, 8 en tunguna ræður enginn mannlegur máttur við. Hún er sífellt reiðubúin spýta banvænu eitri.

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-