Hvað veldur ósamkomulaginu?
1 Hvað veldur öllum þessum deilum og rifrildi á meðal ykkar? Eru það ekki hinar illu hvatir sem reyna að ná valdi yfir ykkur? 2 Þið heimtið, en fáið samt ekki, þið drepið og öfundið – girnist eigur annarra, þið hafið ekki ráð á að eignast slíkt og beitið síðan ofbeldi til að ná því. Ástæða þess að þið fáið ekki það sem þið girnist, er einfaldlega sú að þið biðjið ekki Guð um það.