Pular para o conteúdo
Publicidade

Jakobsbréf 4:1-6

Hvað veldur ósamkomulaginu?

1 Hvað veldur öllum þessum deilum og rifrildi á meðal ykkar? Eru það ekki hinar illu hvatir sem reyna að ná valdi yfir ykkur? 2 Þið heimtið, en fáið samt ekki, þið drepið og öfundið – girnist eigur annarra, þið hafið ekki ráð á að eignast slíkt og beitið síðan ofbeldi til að ná því. Ástæða þess að þið fáið ekki það sem þið girnist, er einfaldlega sú að þið biðjið ekki Guð um það. 3 En jafnvel þótt þið biðjið, þá fáið þið það ekki, því þið biðjið með röngu hugarfari, já, viljið njóta þessara hluta af eigingirni.

4 Þið líkist ótrúrri konu, sem elskar óvin manns síns. Skiljið þið ekki að vinátta við heiminn – illar nautnir þessa heims – er óvinátta við Guð. Ég endurtek: Ef markmið ykkar er að fá notið allra nautna þessa óguðlega heims, þá getið þið ekki samtímis verið vinir Guðs. 5 Eða hvað haldið þið að Biblían eigi við þegar hún segir að heilagur andi, sem Guð hefur sent í hjörtu okkar, vaki yfir okkur og sé umhugað um velferð okkar? 6 Heilagur andi styrkir okkur gegn öllum illum hvötum. Og Biblían segir líka: „Guð stendur gegn dramblátum, en blessar og hjálpar hinum auðmjúku."

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.