13 Takið eftir, þið sem segið: „Í dag eða á morgun förum við til þessa eða hins bæjarins og þar ætlum við að dveljast í eitt ár og græða á viðskiptum." 14 Vitið þið nokkuð hvað morgundagurinn ber í skauti sínu? Líf ykkar er jafn hverfult og morgunþokan, sem sést um stund, en hverfur síðan. 15 Segið heldur: „Ef Drottinn vill, þá lifum við og gerum þetta eða hitt." 16 Nú stærið þið ykkur af eigin áformum og slíkt stærilæti er Guði á móti skapi. 17 Sá sem hefur vit á að gera hið góða, en gerir það samt ekki, drýgir synd.