Publicidade

Tiago 5

Viðvörun til ríkra

1 Hlustið auðmenn! Þið ættuð gráta og kveina yfir ógæfunni sem bíður ykkar. 2 Auður ykkar er orðinn fúinn og skartklæði ykkar verða mölétnum ræflum. 3 Jafnvel gullið og silfrið mun falla í verði og valda ykkur skömm og hugarangri. Þið hafið safnað auðæfum handa sjálfum ykkur, safnað í varasjóð á hinum síðustu tímum. 4 Hlustið á kvein verkamannanna sem þið arðrænduð. Hróp þeirra hafa náð eyrum Drottins hersveitanna.

5 Þið hafið alið sjálfa ykkur eins og sláturfé eytt tíma ykkar við skemmtanir og látið allt eftir duttlungum ykkar. 6 Með þessu athæfi hafið þið sakfellt og deytt hinn réttláta og góða, sem ekki ver hendur sínar.

Við bíðum endurkomu Drottins

7 Kæru vinir, verið þolinmóð meðan þið bíðið endurkomu Drottins, eins og bóndinn bíður þess þolinmóður dýrmæt uppskeran nái fullum þroska. 8 Verið þolinmóð og hugrökk, því koma Drottins er í nánd.

9 Vinir mínir, kvartið ekki hvert yfir öðru. Eruð þið sjálf gallalaus? Sjá! Dómarinn mikli er koma. Hann er rétt ókominn. Látið hann um dæma.

10 Spámenn Drottins sýndu þolinmæði í þrengingunum og eru okkur því góð fyrirmynd. 11 njóta þeir gleði, því þeir voru honum trúir, þrátt fyrir þrengingarnar sem það kostaði þá. Job er dæmi um mann, sem treysti Drottni mitt í þjáningunni. Reynsla hans sýnir hvernig áform Drottins varð til góðs, því Drottinn er ríkur af miskunn og mildi.

12 En umfram allt, kæru vinir, sverjið hvorki við himininn jörðina nokkuð annað. Látið nægja segja eða nei, svo þið syndgið ekki og hljótið dóm.

Lækning og hjálp

13 Ef einhver ykkar þjáist, þá biðji hann, og sem glaður er, syngi lofsöng.

14 einhver ykkar veikur, þá kalli hann til sín presta eða leiðtoga safnaðarins, og þeir skulu bera á hann jurtaolíu í nafni Drottins og biðja fyrir honum. 15 bæn þeirra beðin í trú, mun hann læknast, því Drottinn mun gefa honum heilsuna á . Hafi synd verið orsök sjúkdómsins, þá mun Drottinn fyrirgefa hana.

16 Játið syndir ykkar hvert fyrir öðru og biðjið hvert fyrir öðru, svo þið verðið heilbrigð. Einlæg og kröftug bæn réttláts manns megnar mikið. 17 Elía var venjulegur maður eins og við, en þegar hann bað þess í einlægni ekki rigndi, kom ekki dropi úr lofti í þrjú og hálft ár! 18 Hann bað öðru sinni, en þá um regn. Og regnið kom, svo grasið grænkaði og jörðin bar ávöxt.

19,20 Kæru vinir, ef einhver villist burt frá Guði og hættir treysta Drottni, þá skuluð þið vita sem leiðir hann aftur til Guðs og hjálpar honum til skilja sannleikann nýju, bjargar vegvilltri sál frá dauða og verður til þess margar syndir fást fyrirgefnar.

Jakob

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-28_14-13-17-