14 Sé einhver ykkar veikur, þá kalli hann til sín presta eða leiðtoga safnaðarins, og þeir skulu bera á hann jurtaolíu í nafni Drottins og biðja fyrir honum. 15 Sé bæn þeirra beðin í trú, mun hann læknast, því að Drottinn mun gefa honum heilsuna á ný. Hafi synd verið orsök sjúkdómsins, þá mun Drottinn fyrirgefa hana.
16 Játið syndir ykkar hvert fyrir öðru og biðjið hvert fyrir öðru, svo þið verðið heilbrigð. Einlæg og kröftug bæn réttláts manns megnar mikið.