6 Menn þessir verða að hafa gott orð á sér. Þeir verða að vera góðir eiginmenn og eiga trúuð, hlýðin og siðprúð börn.
7 Biskupar verða að vera óaðfinnanlegir, því að þeir eru þjónar Guðs. Þeir mega hvorki vera drambsamir né óþolinmóðir og ekki heldur drykkfelldir, óeirðagjarnir eða sólgnir í peninga. 8 Þeir séu gestrisnir og elski allt sem gott er, grandvarir og heiðarlegir. Þeir verða að gæta hófs í hvívetna og hafa hreint hugarfar. 9 Þeir skulu halda fast við sannleikann, sem þeim var kenndur, svo að þeir geti frætt aðra og hrakið kenningar andstæðinganna.