11 Því að fyrirgefning Guðs og hjálpræði hans stendur öllum til boða, og það ókeypis. 12 Þetta sýnir að Guð vill að við snúum okkur frá guðleysi og syndsamlegum nautnum, til góðs og guðrækilegs lífernis, 13 bíðandi þeirrar stundar er dýrð hans birtist – dýrð hins mikla Guðs og frelsara okkar Jesú Krists, 14 sem tók á sig dóm Guðs yfir syndum okkar og dó í okkar stað. Þetta gerði hann til að leysa okkur frá syndinni og taka okkur að sér sem sína eigin þjóð – til að hreinsa hjörtu okkar og vekja hjá okkur löngun til að gera öðrum gott.