Publicidade

Tito 3

Áminning og viðvörun

1 Minntu hina kristnu á hlýða yfirvöldum og embættismönnum, og vinna fúslega öll heiðarleg störf. 2 Þeir eiga ekki tala illa um nokkurn mann, heldur vera friðsamir, sanngjarnir og hógværir við alla. 3 Eitt sinn vorum við líka óskynsöm, óhlýðin og létum leiða okkur í villu og þrældóm margs konar illra fýsna og girnda. Líf okkar var fullt af vonsku og öfund, og við hötuðum hvert annað.

4 En þegar gæska og kærleiki Guðs og frelsara okkar birtist, 5 þá frelsaði hann okkur, ekki vegna þess hve góð við vorum, heldur vegna kærleika síns og miskunnar. Hann þvoði burt syndir okkar og endurfæddi okkur með heilögum anda. 6 Hann úthellti anda sínum yfir okkur, og það ríkulega, vegna Jesú Krists, frelsara okkar. 7 Þetta gerði hann til geta úrskurðað okkur hrein og syndlaus í augum Guðs og gert okkur erfingjum eilífs lífs. 8 Þetta er sannleikur og þú skalt leggja áherslu á það allt, svo kristnir menn kappkosti stunda góð verk, því það er ekki aðeins rétt, heldur einnig gagnlegt.

9 Láttu engan leiða þig út í heimskulegar rökræður um einskisnýta hluti. Forðastu deilur og þras um lög Gyðinga, slíkt borgar sig ekki og er aðeins til tjóns. 10 sem veldur deilum og klofningi á meðal ykkar, skal áminntur einu sinni eða tvisvar ef þörf er á. Ef það dugar ekki, skuluð þið slíta sambandi við hann, 11 því maður metur hlutina ranglega og syndgar af ásettu ráði. Hann er sjálfdæmdur.

12 Ég er hugsa um senda til þín Artemas eða Týkíkus, og þegar annar hvor þeirra kemur, skaltu reyna hitta mig í Nikópólis, því þar ætla ég vera í vetur. 13 Gerðu allt sem þú getur til aðstoða Senas lögfræðing og Apollós á ferð þeirra, og gættu þess þá vanti ekki neitt. 14 Okkar menn verða læra gera öðrum gott, svo líf þeirra skili árangri.

15 Allir sem hér eru, biðja heilsa. Skilaðu kveðju til allra kristnu vinanna sem hjá þér eru. Blessun Guðs með ykkur öllum.

Páll

Veja também

Tito
Ver todos os capítulos de Tito
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-07-05_19-25-13-