O adultério
O adultério é pecado grave que destrói alianças, famílias e vidas. A Bíblia condena firmemente a infidelidade conjugal e chama à pureza, fidelidade e santidade no casamento.
A lei de Deus
Não adulterarás. Quem comete adultério destrói a própria alma. A Palavra de Deus é clara e direta sobre este pecado.
Jesus ensina
Quem olhar para uma mulher com intenção impura já adulterou no coração. Jesus elevou o padrão da pureza.
Boðorðið segir: „Þú skalt ekki drýgja hór." En ég segi: Sá sem horfir á konu með girndarhug, hefur þegar drýgt hór með henni í huga sínum.
En ég segi: Skilji maður við konu sína af annarri ástæðu en þeirri að hún hafi verið honum ótrú, veldur hann því að hún drýgir hór, og sá sem síðar kvænist henni drýgir einnig hór.
Illar hugsanir, morð, hórdómur, saurlifnaður, þjófnaður, lygi og illt umtal, allt á þetta upphaf sitt í huga og sál mannsins.
Þá sagði Jesús: „Sá sem skilur við konu sína og kvænist annarri, drýgir hór gegn henni. Og skilji kona við mann sinn og giftist öðrum, drýgir hún hór."
Ef einhver skilur við konu sína, drýgir hann hór og sama er að segja um þann sem kvænist fráskilinni konu."
„Kennari," sögðu þeir við Jesú. „Þessi kona var staðin að því að drýgja hór. Lög Móse segja að slíkar konur eigi að grýta. Hvað viltu segja um það?"
Ætlun þeirra var að fá hann til að segja eitthvað sem þeir gætu ákært hann fyrir. Þá beygði Jesús sig niður og skrifaði í sandinn með fingrunum. Á meðan héldu hinir áfram að krefja hann svars. Jesús stóð upp og sagði: „Allt í lagi. Grýtið hana, en sá ykkar sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum!"
Síðan kraup hann aftur niður og hélt áfram að skrifa í sandinn, en leiðtogarnir laumuðust í burtu, fyrst sá elsti og síðan einn af öðrum. Að lokum var Jesús þar einn ásamt konunni og mannfjöldanum.
Jesús stóð þá upp og spurði konuna: „Hvar eru þeir? Ákærði þig enginn?"
„Nei, herra, enginn," svaraði hún.
„Ég ákæri þig ekki heldur," sagði Jesús, „farðu og syndgaðu ekki framar."
Armadilhas e consequências
Os lábios da mulher estranha destilam mel, mas o seu fim é amargo. Fuja da imoralidade — o adultério escraviza.
Haldið ykkur því frá öllu kynferðislegu lauslæti. Engin synd hefur jafnmikil áhrif á líkamann og sú. Ef þið syndgið á þennan hátt, þá er það gegn ykkar eigin líkama.
Ég hvet ykkur til að hlýða aðeins því sem heilagur andi segir ykkur. Hann mun segja ykkur hvert þið eigið að fara og hvað þið eigið að gera, og þá munuð þið ekki lengur hlýðnast sjálfselskunni. Það er í eðli okkar að gera hið illa, einmitt það sem heilagur andi segir okkur að láta ógert. Sama er að segja um hið góða sem heilagur andi kemur til leiðar, þegar hann fær rúm í lífi okkar, það stendur í gegn okkar illa eðli. Þessi tvö öfl innra með okkur eiga í stöðugri baráttu um yfirráð yfir okkur og þau munu aldrei láta okkur afskiptalaus.
En ef þið hins vegar látið eigingirnina leiða ykkur, þá verður afleiðingin þessi í lífi ykkar: Óhreinar hugsanir, löngun í siðlausar nautnir, hjáguðadýrkun, andakukl, fjandskapur og deilur, afbrýðisemi, reiði, eigingirni, sundrung og flokkadrættir. Rangkenningar munu koma fram, öfund, drykkjuskapur, svall og fleira í þeim dúr. Og enn einu sinni segi ég ykkur, eins og ég hef oft sagt áður, að sá sem lifir slíku lífi mun ekki erfa guðsríki.
Hjónabandið sé í heiðri haft og öll þau heit sem því fylgja. Lifið siðferðislega hreinu lífi, því að Guð mun sannarlega refsa öllum sem lifa í siðleysi og drýgja hór.
Því að Guð vill að þið séuð heilög og hrein og forðist allt lauslæti. Sérhver umgangist maka sinn í heilagleik og sæmd, en ekki í brennandi girnd eins og heiðingjarnir, sem hvorki þekkja Guð né vilja hans.
Þið líkist ótrúrri konu, sem elskar óvin manns síns. Skiljið þið ekki að vinátta við heiminn – illar nautnir þessa heims – er óvinátta við Guð. Ég endurtek: Ef markmið ykkar er að fá notið allra nautna þessa óguðlega heims, þá getið þið ekki samtímis verið vinir Guðs.
Ég gaf henni frest til að skipta um skoðun og taka nýja stefnu, en hún vildi það ekki. Taktu nú eftir því sem ég segi: Ef hún og þeir, sem fylgt hafa siðleysi hennar, iðrast ekki synda sinna, mun ég láta þau öll leggjast á sóttarsæng