Ajuda para casais
Deus fortalece casamentos. A Bíblia oferece sabedoria prática para casais: comunicar com verdade, perdoar com graça, servir com amor e buscar a Deus juntos.
Amor e respeito
Maridos, amai vossas mulheres. Mulheres, respeitem seus maridos. O amor mútuo edifica o casamento.
Eiginmenn! Sýnið konum ykkar sömu ást og umhyggju og Kristur söfnuðinum, þegar hann dó fyrir hann,
Ég endurtek því: Maðurinn verður að elska konu sína sem hluta af sjálfum sér og konan verður að gæta þess að heiðra mann sinn og hlýða honum.
Á sama hátt eiga eiginmenn að koma fram við konur sínar. Þeir eiga að elska þær sem hluta af sjálfum sér. Fyrst eiginmaðurinn og eiginkonan eru eitt, þá er maðurinn í raun og veru að gera sjálfum sér greiða og elska sjálfan sig, þegar hann elskar eiginkonu sína! Enginn hatar sinn eigin líkama, heldur gæta menn hans af mikilli umhyggju. Eins er með Krist, hann gætir líkama síns, safnaðarins, en við erum hvert um sig limir á þeim líkama.
Hættið að ljúga en segið sannleikann. Við erum eitt, og ef við ljúgum hvert að öðru, þá spillum við fyrir okkur sjálfum.
Ef þið reiðist, þá syndgið ekki með því að ala á reiðinni. Leggið reiðina af áður en sólin sest, því að reiður maður er gott skotmark hins vonda.
Forðist allt óhreint tal. Segið það eitt sem gott er, og getur orðið til hjálpar og blessunar þeim sem á hlusta.
Sýnið hér eftir hvorki beiskju, ofsa né reiði. Rifrildi, grófyrði og baktal ætti ekki að vera til á meðal ykkar. Verið þess í stað vingjarnleg hvert við annað, góðhjörtuð og fús að fyrirgefa hvert öðru, rétt eins og Guð hefur fyrirgefið ykkur í Kristi.
União e fidelidade
O que Deus ajuntou não separe o homem. Eu e minha casa serviremos ao Senhor. A fidelidade é alicerce do casamento.
Þau tvö eiga að verða eitt – ekki framar tvö, heldur eitt! Enginn maður má aðskilja það sem Guð hefur sameinað."
Hjónabandið sé í heiðri haft og öll þau heit sem því fylgja. Lifið siðferðislega hreinu lífi, því að Guð mun sannarlega refsa öllum sem lifa í siðleysi og drýgja hór.
Kristið heimili
Eiginkonur, verið undirgefnar mönnum ykkar, því það er vilji Drottins. Og eiginmenn, elskið konur ykkar! Sýnið þeim nærgætni en ekki beiskju og hörku.
En umfram allt, látið kærleikann ráða í lífi ykkar, því að þá verður fullkomið samstarf og eining í söfnuðinum. Látið frið Krists búa í hjörtum ykkar, það er skylda ykkar og jafnframt forréttindi sem hluta af líkama hans. Verið þakklát.
Fyrst Guð hefur elskað ykkur svo heitt og útvalið, þá ættuð þið að kappkosta að sýna öllum góðvild og miskunnsemi. Reynið ekki að þykjast öðrum fremri, heldur verið fús að þola mótlæti með þögn og þolinmæði. Verið hógvær og fljót að fyrirgefa og berið ekki kala til nokkurs manns. Minnist þess að Drottinn hefur fyrirgefið ykkur og því verðið þið einnig að fyrirgefa öðrum.
Perdão e paciência
Sede bondosos e compassivos uns com os outros. O amor é paciente, benigno. Permanece e persevera.
Kærleikurinn er þolinmóður og góðviljaður. Hann er hvorki öfundsjúkur, montinn né hrokafullur. Hann er aldrei yfirlætislegur, eigingjarn eða ókurteis. Hann krefst ekki réttar síns, reiðist ekki og er ekki langrækinn né smámunasamur. Hann gleðst aldrei yfir ranglæti, heldur fagnar þegar sannleikurinn nær fram að ganga. Sá sem hlýðir rödd kærleikans, breiðir yfir mistök annarra, treystir orðum þeirra, umber þá og væntir góðs frá þeim.
En ég hef ekki aðeins ábendingar til þeirra sem giftir eru, heldur einnig fyrirmæli. Og það eru ekki bara fyrirmæli frá mér, heldur sjálfum Drottni: Eiginkona má ekki skilja við mann sinn. En hafi hún skilið við hann, þá á hún að vera áfram ógift eða fara til hans aftur. Eiginmaður má ekki heldur skilja við konu sína.
Karlmaðurinn á að veita konu sinni það sem henni ber og konan manninum. Stúlka sem giftist hefur ekki lengur fullan rétt yfir eigin líkama, því eiginmaður hennar hefur einnig sinn rétt til hans. Á sama hátt hefur eiginmaðurinn ekki lengur fullt vald yfir sínum líkama, því að hann tilheyrir konu hans. Samkvæmt þessu skulu hjón ekki neita hvort öðru um rétt hins, nema þau séu sammála um það stuttan tíma, til að geta helgað sig bæninni. Síðan ættu þau að koma saman á ný, svo að Satan freisti þeirra ekki vegna veikleika þeirra.
Verið ekki eigingjörn! Sækist ekki eftir því að vaxa í áliti hjá öðrum. Verið auðmjúk. Haldið ykkur ekki betri en aðra. Hugsið ekki aðeins um eigin hag, heldur sýnið öðrum áhuga og því sem þeir hafa fyrir stafni.
Gætið þess að enginn gjaldi illt fyrir illt, en reynið í hvívetna að gera hvert öðru gott og einnig þeim sem ekki eru kristnir.
En umfram allt berið brennandi kærleika hvert til annars, því að kærleikurinn getur breitt yfir margt sem miður fer.