Amor próprio
O amor próprio saudável reconhece o valor que Deus nos deu. Fomos criados à imagem de Deus, maravilhosamente formados. Aceitar-se é honrar o Criador.
Þökk, að þú skapaðir mig eins undursamlega og raun ber vitni! Þetta er dásamlegt um að hugsa! Handaverk þín eru stórkostleg – það er mér alveg ljóst.
Hugsanir þínar, ó Guð, eru mér torskildar, en samt eru þær stórkostlegar! Ef ég reyndi að telja þær, þá yrði það mér ofviða því að þær eru fleiri en sandkorn á sjávarströnd! Já, ég mundi vakna eins og af draumi, en hugur minn, hann væri enn hjá þér!
Þú hefur kennt börnum að lofsyngja þér. Fyrirmynd þeirra og vitnisburður þaggi niður í óvinum þínum og valdi þeim skömm.
Þegar ég horfi á himininn og skoða verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar sem þú hefur skapað – þá undrast ég að þú skulir minnast mannsins, láta þér umhugað um mannanna börn.
Hann reisir hinn fátæka úr skítnum, leiðir hinn hungraða frá sorphaugnum og fær þeim sæti með tignarmönnum!
En þið eruð ekki þannig, því að sjálfur Guð hefur valið ykkur. Þið eruð prestar hins æðsta konungs. Þið eruð heilög og hrein. Þið eruð þjóð Guðs, hans eigið fólk. Þið eigið að segja öðrum hvernig Guð kallaði ykkur út úr myrkrinu og inn í undursamlegt ljós sitt.
Hvað kosta fimm spörfuglar? Varla meira en tvo smápeninga? Samt gleymir Guð engum þeirra. Hann veit líka hve mörg hár eru á höfði ykkar! Verið ekki kvíðafullir, því að þið eruð miklu meira virði í hans augum en margir spörvar.
Nú ætla ég, sem er sendiboði Guðs, að gefa ykkur hverju og einu þessa viðvörun: Metið hæfileika sjálfra ykkar af réttsýni, í samræmi við þann trúarstyrk sem Guð hefur gefið ykkur.