Publicidade

Salmos 8

1,2 Ó, Drottinn Guð, mikið er nafn þitt! Jörðin er full af dýrð þinni og himnarnir endurspegla mikilleik þinn.

3 Þú hefur kennt börnum lofsyngja þér. Fyrirmynd þeirra og vitnisburður þaggi niður í óvinum þínum og valdi þeim skömm.

4 Þegar ég horfi á himininn og skoða verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar sem þú hefur skapað 5 þá undrast ég þú skulir minnast mannsins, láta þér umhugað um mannanna börn. 6 Og líka, þú lést manninn verða litlu minni en Guð! Krýndir hann sæmd og heiðri!

7 Þú hefur sett hann yfir allt sem þú hefur skapað, allt er honum undirgefið: 8 Uxar og allur annar fénaður, villidýrin 9 fuglar og fiskar, , allt sem í sjónum syndir. 10 Ó, Drottinn Guð, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!

Veja também

Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-07-05_19-25-13-