Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 45

1,2 Hjarta mitt svellur af fögrum orðum. Ég vil flytja konungi ljóð. Tunga mín er penni hraðritarans, hún flytur langa sögu á augabragði:

3 Þú ert fegurri en mannanna börn. Blessun streymir um varir þínar. Velþóknun Guðs er yfir þér eilífu.

4 Þú hetja, tak herklæði þín, máttugur ertu og krýndur ljóma 5 Sæktu fram! Sigursæll ertu, vörður tryggðar og réttlætis. Gakk fram máttarverk þín verði á allra vörum!

6 Örvar þínar eru hvesstar, óvinir falla fótum þér. 7 Hásæti þitt, ó Guð, stendur um eilífð. Réttlætið er sproti þinn. 8 Þú elskar hið góða hefur andstyggð á illsku. Því hefur Guð, þinn Guð, sveipað þig gleði sem engan annan.

9 Skikkja þín ilmar af myrru, alóe og kassíu. Hallir þínar eru skreyttar fílabeini og fyllast af ljúfum tónum. 10 Konungadætur eru í hópi vinkvenna þinna. Drottningin stendur þér við hlið, fagurlega klædd og skreytt skíra gulli frá Ófír! 11,12 Dóttir mín, hlustaðu. Ég vil gefa þér ráð: Gleymdu heimþránni, vertu ekki döpur. Konungurinn elskar þig og gleðst yfir fegurð þinni. Sýndu honum lotningu því hann er herra þinn. 13 Íbúar Týrus, baða þig í gjöfum og auðmenn þjóðarinnar leita hylli þinnar."

14 Brúðurin konungsdóttir bíður í skrauthýsi sínu, íklædd fegursta djásni, kjól skreyttum gulli og perlum. 15 Fögur er hún! Meyjarnar leiða hana á fund konungs. 16 Þær fara í skrúðgöngu gegnum hliðið. Þarna er höllin! 17 Synir þínir verða allir konungar og feta í fótspor föður síns. Þeir munu sitja á hásætum víðs vegar um heim!"

18 Ég mun gera nafn þitt kunnugt meðal allra kynslóða og þjóðir jarðarinnar munu hylla þig eilífu."

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também