Publicidade

Salmos 126

1 Þegar Drottinn flutti þjóð sína aftur til Jerúsalem, heim úr herleiðingunni, þá héldum við að okkur væri að dreyma! 2 Við sungum og hlógum af gleði. Þá sögðu heiðnu þjóðirnar: „Drottinn hefur gert ótrúlega hluti fyrir þá!" 3 Já, undursamlega hluti! Hvílíkt undur! Hvílík gleði! 4 Hresstu okkur nú Drottinn, já gefðu okkur kröftuga gróðrarskúr!

5 Þeir sem sá með tárum skulu uppskera með gleðisöng. 6 Grátandi bera þeir sæðið til sáningar, en syngjandi koma þeir aftur og bera kornbindin heim!

Veja também

Publicidade
Bíblia Online Bíblia Online

Bíblia Online • Versão: 2026-06-15_21-32-39-