1,2 Ég bið og bið til Drottins, stöðugt grátbæni ég hann. 3 Ég er hræddur og ráðvilltur. Þú einn þekkir leiðina framhjá gildrum óvina minna. 4 Enginn maður hugsar hlýtt til mín. Hvergi er góð ráð að fá. Öllum er sama um mig. 5 Því bið ég til Drottins og segi: „Drottinn, þú einn ert skjól mitt á jörðu, ég er hvergi öruggur nema hjá þér. 6 Heyrðu hróp mitt því að ég er mjög þjakaður. Frelsaðu mig frá þeim sem ofsækja mig, því að þeir eru mér yfirsterkari. 7 Leiddu mig úr þessum mikla vanda og þá mun ég lofa þig. Hinir guðhræddu munu þyrpast til mín og fagna með mér yfir hjálp þinni."
Publicidade
Publicidade
Salmos
123456789101112131415161718192021222324252627282930313233343536373839404142434445464748495051525354555657585960616263646566676869707172737475767778798081828384858687888990919293949596979899100101102103104105106107108109110111112113114115116117118119120121122123124125126127128129130131132133134135136137138139140141142143144145146147148149150
Ver todos os capítulos de Salmos