Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 109

1 Þú Guð sem ég lofa, vertu ekki þögull 2 því óguðlegir baktala mig og ljúga á mig sökum. 3 Án saka hata þeir mig og ráðast á mig. 4 Ég elska þá, en jafnvel meðan ég bið fyrir þeim, ofsækja þeir mig. 5 Þeir gjalda gott með illu og ást mína með hatri.

6 Leyfðu þeim finna hvernig mér líður! Leyfðu óvini mínum þola sama óréttlæti og hann beitir mig vera dæmdur af ranglátum dómara. 7 Og þegar úrskurður fellur, lát hann þá verða honum til tjóns. Líttu á bænir hans eins og innantómt raus. 8 Styttu æviár hans. Skipaðu annan í embætti hans. 9,10 Börn hans verði föðurlaus og kona hans ekkja og rektu þau burt úr rústum heimilis þeirra. 11 Lánardrottnarnir taki landareign hans og ókunnugir fái allt sem hann hafði aflað. 12,13 Enginn sýni honum miskunn aumki sig yfir föðurlausu börnin hans. Afkomendur hans verði afmáðir og ætt hans eins og hún leggur sig. 14 Refsaðu fyrir syndir föður hans og móður og dragðu ekki af. 15 Láttu misgjörðir hans aldrei falla í gleymsku, en minningu ættarinnar engu verða.

16 Hann sýndi engum manni miskunn, en ofsótti nauðstadda og steypti aðþrengdum í dauðann. 17 Hann formælti öðrum, bölvunin komi honum sjálfum í koll. blessa lét hann ógert, blessun því fjarri honum. 18 bölva, það átti við hann, það var honum eðlilegt eins og éta og drekka.

19 Formælingar hans bitni á honum sjálfum, hylji hann, eins og fötin sem hann er í og beltið um mitti hans. 20 Þetta séu laun andstæðinga minna frá Drottni þeirra sem ljúga á mig og hóta mér dauða.

21 En Drottinn, farðu með mig eins og barnið þitt! Eins og þann sem ber þitt eigið nafn. Frelsaðu mig Drottinn, vegna elsku þinnar.

22,23 Það hallar undan fæti, ég finn dauðinn nálgast. Ég er hristur til jarðar eins og padda af ermi! 24 Ég skelf í hnjánum fastan var erfið, ég er ekkert nema skinn og bein. 25 Ég er eins og minnisvarði um mistök og þegar menn sjá mig hrista þeir höfuðið.

26 Hjálpaðu mér Drottinn Guð minn! Frelsaðu mig sakir elsku þinnar og kærleika. 27 Gerðu það svo allir sjái, svo enginn efist um það var þitt verk, 28 þá mega þeir formæla mér ef þeir vilja, sama er mér, aðeins þú blessir mig. Þá munu illráð þeirra gegn mér mistakast og ég ganga mína leið, glaður í bragði.

29 Ónýttu áform þeirra! Sveipaðu þá skömm! 30 Þá mun ég ekki láta af þakka Drottni, lofa hann í allra áheyrn. 31 Því hann er athvarf fátækra og þeirra sem líða skort. Hann frelsar þá undan óvinum þeirra.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também