Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 54

1 Sálmur eftir Davíð, 2 ortur þegar menn frá Síf reyndu svíkja hann í hendur Sál konungs.

3 Komdu í mætti þínum, ó Guð, og bjargaðu mér! Verndaðu mig með krafti þínum! 4 Bænheyrðu mig, 5 því ofbeldismenn hafa risið gegn mér heiðingjar sem ekki trúa á þig, sækjast eftir lífi mínu.

6 En Guð er minn hjálpari. Hann er vinur minn! 7 Fyrir hans tilverknað mun illska þeirra koma þeim sjálfum í koll. Efndu loforð þitt, Guð, og þurrkaðu út þessa illvirkja.

8 Glaður kem ég fram fyrir þig með fórn mína. Ég lofa nafn þitt, Drottinn, því það er gott.

9 Guð hefur frelsað mig frá dauða og yfirbugað óvini mína.

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também