Pular para o conteúdo
Publicidade

Sálmarnir 95

1 Komið! Við skulum lofsyngja Drottni! Hrópum gleðióp til heiðurs kletti hjálpræðisins!

2 Komum fram fyrir hann með þakkargjörð, syngjum honum lofgjörðarsálm. 3 Því Drottinn er mikill Guð og æðri öllum sem menn kalla guði. 4 Hann hefur upphugsað djúp jarðar og hannað hin hæstu fjöll. 5 Hann gerði hafið og myndaði þurrlendið, allt er hans! 6 Komið! Föllum fram fyrir Drottni, skapara okkar, 7 því hann er okkar Guð. Við erum hjörðin hans og hann er hirðir okkar. Ó, þið vilduð heyra kall hans í dag og koma til hans.

8 Forherðið ekki hjörtu ykkar eins og Ísraelsmenn gerðu hjá Meriba og Massa í eyðimörkinni. 9 Þar drógu feður ykkar orð mín í efa sömu menn og sáu mig gera mörg kraftaverk. Þeir freistuðu mín, kvörtuðu og reyndu á þolinmæði mína. 10 Í fjörutíu ár hafði ég viðbjóð á þessari kynslóð," segir Drottinn Guð. Hjörtu þeirra allra voru langt í burtu frá mér og ekki vildu þeir halda lög mín. 11 Þá hét ég því þeir skyldu aldrei komast inn í fyrirheitna landið, staðinn sem ég hafði ætlað þeim til hvíldar."

Estes versículos te tocaram? Ore agora!

+581 estão orando agora.

Junte-se à corrente de oração.

Veja também